Skip menu
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar
Smella & Sækja
Frí heimsending við kaup yfir 10.000 kr.
Afhendingartími 1-5 virkir dagar

Vöruupplýsingar

Vörunúmer 62306

Flügger Wood Tex Wood Oil – Verndar og dregur fram náttúrulega æðaspeglun viðarins á pöllum, girðingum og garðhúsgögnum.

Vatnsþynnanleg tréolía með vatnsfráhrindandi eiginleika til meðhöndlunar á timburpöllum, girðingum og garðhúsgögnum. Olían verndar yfirborðið á áhrifaríkan hátt á meðan náttúruleg áferð og æðaspeglun viðarins helst sýnileg. Hún hentar vel fyrir bæði ljósar og dökkar veðrunarþolnar viðartegundir ásamt fúavarðri fura, þar sem hún hamlar jafnframt örveru- og mygluvexti á yfirborðinu.
  • Vatnsfráhrindandi áferð með mikla vörn
  • Dregur fram náttúrulega æðaspeglun og áferð viðarins
  • Hamlar vexti örvera og myglu
  • Verndar gegn UV-geislum sólarinnar (þegar valin er lituð olía)
  • Hentar vel fyrir palla, girðingar og garðhúsgögn
Kostir nýrra gæða
  • Smitast betur inn í viðinn sem lágmarkar hættu á að lakkmyndun verði of mikil á yfirborðinu
  • Viðurinn mettast betur og endingin batnar til muna
  • Umhverfismerkið Svanurinn - þín staðfesting á gæðum

Fyrir málun
Undirlagið verður að vera rakadrægt, hreint og þurrt með rakastig að hámarki 18%. Fjarlægja verður allar fyrri meðferðir með lakki eða málningu að fullu. Þrífið með pallaþvotti (Terrasserens) til að fjarlægja óhreinindi og notið fasaða-algeyfinn ef vart verður við þörunga eða myglu. Pússa skal ómehöndlað yfirborð eða yfirborð sem áður hefur verið olíuborið með sandpappír (grófleiki 80) fyrir ásetningu til að tryggja sem besta ísmurningu.

Við málun
Olían er borin á með pensli, rúllu eða svampi og unnin vandlega inn í viðinn. Vinnið „vott í vott“ og klárið með því að strjúka í sömu átt. Endurtakið meðferðina þar til viðurinn er mettaður og ásýndin er jöfn, án þess að lakkhimna myndist. Þurrka skal af alla umframaolíu. Forðist að bera á í beinu sólskini eða ef hætta er á döggmyndun.

Eftir málun
Verjið nýmálað yfirborðið fyrir raka og úrkomu fyrst um sinn eftir ásetningu. Yfirborðið nær hámarksstyrk þegar það er fullharðnað. Safna skal saman málningarafgöngum og hreinsivökva og farga sem spilliefnum, en flokka skal tómar umbúðir sem plast (muna að fjarlægja málmhandfang).

  • Vatnsfráhrindandi tréolía - tilbúin til notkunar eftir 24 klukkustundir
  • Hægt að tóna í hálfgegnsæjum litum
  • Fyrir timburpalla og garðhúsgögn

Flugger Wood Oil - Vatnsfráhrindandi tréolía

Frá 3.067 kr/stk. 4.090 kr/stk.
Frá 2.183 kr/l
Sparaðu 25%
Vatnsfráhrindandi tréolía - tilbúin til notkunar eftir 24 klukkustundir
Hægt að tóna í hálfgegnsæjum litum
Fyrir timburpalla og garðhúsgögn
  • 24
    Klukkustundir
    Endurmálunartími
  • 8
    m2/líter
    Rekstrarfærni
1.

Veldu lit

Okkar staðallitir

Litlaust
2.

Veldu magn

Heildarupphæð: ISK 3,067
ISK 4,090
Magn
0.7 l
Þekur með einni umferð
5.6 m2